blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

2.27.2005

Ble

Fyrir 4 dögum birti til og það er eins og vorið sé að koma. Merkilegt hvað allt verður miklu betra, bjartara, jakvæðara og fallegra. Ég fann meira að segja svona “danska” tilfiningu. Stoppaði allt i einu í amstri dagsins og hugsaði um það hvað mér lýður vel ! Ég er buin að vera að leita að þessarri tilfiningu frá þvi ég flutti heim. Vona að hun sé komin til að vera. Leiðist það að leiðast hér .. er að reyna að breyta þessu. Það er ekki það að eg sé ekki glöð og mér lýður alls ekki illa. Mig vantar bara eitthvað..til þess að danska tilfiningin verði dagsdagleg.. .þessi almenna hamingja .. veit ekki alveg hvað það er.. en fyrst er að finna það svo að framkvæma. Þá ætti þetta að takast. Brjálæðislega bjartsyn eins og vanalega.
Held að ég geti sagt það með fullvissu að eg gerði ekkert af viti í síðustu viku í vinnunni. Algerlega að springa yfir þvi hvað það er mikið að gera.. sem varð til þess að eg bara snérist um sjálfan mig, gerði sitt lítið af hverju en kláraði ekkert. Skipulags leysi eins og það gerist best!
Íbuðin mjakast áfram. Keypti eldhús innréttingu í vikunni sem eg vona að komi um páskana plús mínus. Ultimate planið er að allt annað verði þá tilbuið þannig það verði hægt að setja hana upp og svo flytja inn!
hei kiddý!! takk fyrir myndirnar :) þær eru rosalega flottar og magadasbeltið er buin að vekja heldur betur lukku á heimilinnu hehe... fann magadasntónlist og svo hefur bara verið dansað um allt hus..ekkert smá gaman!
Var að fá sms vvííí Gulla og Binni voru að eignast stelpu! Hún er víst alveg eins og Óskar og allt gekk vel :) Annað barnið í Kiddaklubbnum á þessu ári og eitt á leiðinni sem vitað er af.. Við erum orðin að stórfjölskyldu.. Við erum 8 plus makar og 9 börn og eitt rétt ókomið!

2.25.2005


sönnunargögn 1 Posted by Hello

2.21.2005

mánudagsmorgun og er einstaklega sibbin eitthvað. geysp! Fullt sem eg þarf að koma frá mér.. svo mikið að gerast... en það virðist eins og einhverjar heilafrumur séu að skrópa .. reyni aftur á eftir :-/

2.14.2005


Glæsilega stofan Posted by Hello


Allt að koma Posted by Hello


Birta er himinlifandi yfir þessum lit á herberginu sínu!! :-/ Posted by Hello


Öskudagur.. Litli vargurinn!!  Posted by Hello

2.13.2005

Með minnkandi óráði

Mín elskulega maria vakti mig í morgun. Hún á inni allmikið af inneign fyrir að "hringja þegar maður er á tjúttinu" :) Mér hefur nefnilega fundist það alltaf besta hugmyndin þegar líða tekur á hvítvinið að hringja til usa :) og spjalla.. burt séð frá öllum tímamismun og det helle!! Ekkert smá gott að drekka morgunkaffið með þer mæja min! ég sakna þin svo mikið, smakk og knús til þin. Mikið hlakka eg til að fá þig í heimsókn í sumar :)
Annars bara skotgangur.... líkurnar á finnlandsferðinni minka allverulega með hverjum deginum.. tala nú ekki um að hafa ekki mætt í vinnuna í viku núna vegna óráðs.... EN held í vonina.. færi þá eftir svona 3 vikur eða svo.. og það norður í rassgat .. næstum bókstaflega.. Gengið ætlar nefnilega að hittast í einhverjum Samabæ... Þetta yrið algerlega stórkostlegt..

2.12.2005

Fjandans Kefin Beikon á laugardagskvöldi

Kanski er það vegna þess að Rúv gerði persónulegan samning við Mr. Bacon eða kanski er það vegna þess að ég hef ekki planað eitthvað reglulega.. þó það væri ekki nema oggu smá.. spennandi tilhlökkunar-atburð á næstunni.. (NB; við erum að sjálfsögðu að tala saman í min ) að það liggur svona "mér er alveg sama" værð yfir mér... Finnst reyndar það vera frekar frústrerandi að vera svona í værð... fer mér eitthvað svo illa að hafa ekki fullt fyrir stafni :/ ... Gamla í "værð"= ekki 23 hluti að gera akkurat núna.. bara fjandans beikon í tv.. og ekki ró til að gera neitt annað en að andskotast yfir þvi! hmn! Eftir að vera búin að taka 5 daga í veikindi með fylgjandi kvillum er mar búin að gera alla þessa tilgangslausu hluti og nennir lífsisn ómögulega að halda þeim áfram....Er farin að finna óneitanlega fyrir þvi að vinir mínir eru á barneignar- og giftingaraldrinum ....Hvað gerir gamla í þvi?? vildi að kiddy og valdi væru hérna.. auðvelt að stúta tollinum með þeim!

2.11.2005

Kanski einn þorsk og hálfan steinbít??

Vaknaði upp við sjálfan mig segja hátt og skýrt " samloku með skinku og osti.. og og kók" Þegar eg opnaði augun sat eg í ruminu mínu, með hendina útrétta og benti staðfastlega á hægra hornið í herberginu. Hlítur að hafa verið undaleg sjón.
Hægt að túlka þetta þannig að löngunin í mat sé orðin bísna mikil. ég hef ekki fengið neitt almennilegt að borða í 5 daga núna.. þannig skyndibitaviðbjóður er orðin að draumóra. Ég veit samt satt að segja ekki hvort hefur verið verra.. að vera með hita og óráð þessa daga eða dagskráinn á RUV?? Svei mér þá.. ég vissi ekki að þetta væri svona rosalegt! Vissi að hún væri ekki uppá marga fiska en .. já það er ekkert hægt að segja um þetta. En þetta gengur ekki lengur.. er komin með heiftarleg frákvarfseinkenni á hreyfingu og köldu súrefni.. planið er að dúða sig upp og koma sér af stað.

2.09.2005

Hjálmar

Þegar kona er veik dreimir hana meiri vitleysu en vanalega... við mæðgurnar erum rosalegar herna saman. og fyrir ykkur sem þekkið móðir mína skyljið þetta kanski bara... en hun er búin að vera að segja mér fra rugl draumunum sínum... Fyrir utan að þeir eru algert bull er það fyndna við þá er að hljómsveitin Hjálmar er allsstaðar.. Hvað er súrara en það????? og að HENNI skuli dreima þá!!!!!!

2.08.2005

Ich libe parkodin

Öll orka er búin að fara í að halda þessu á floti.. halda í venjulegan vinnutíma, sinna dýrinu og vinna eins og MF í íbúðinni. Eftir að hafa unnið allan laugardaginn, bárust þau tíðindi að það væri beyglu tjútt um kvöldið og auðvita má mar ekki missa af þvi!! Skynsamlega séð hefði ég að sjálfsögðu átt að vera heima hja mér.. enda ekki til baun af orku. En nei...Það var að vísu rosa fínt stuð en mér varð svo kalt.... Enda sit eg núna hérna eins og aumingji með 39 stiga hita og mesta hausverk sem þekkist hér sunnan heiða! Tilgangurinn minn núna er að horfa á klukkuna og býða eftir að ég meigi taka næstu parkotín. Ömurlegt ástand!

2.02.2005

Er ég í félagslegri hættu ?

Þetta hefur verið hálf lúðalegur dagur, umvafin flíspeysu og tefaskóm... og heimskulegum hugmyndum! Buin að vera að lesa í allan dag og þar af leiðandi sló ég persónulegt met mitt í kaffidrikkju..... merkilegt að þrátt fyrir óhuggulegt magn af kaffi hef ég rétt haldist hérna megin við línunna! hhhmmmmmm Allavega.. gæti drepið mann og annan úr leiðindum með þekkingunni sem ég náði mér í ..í dag.. hhmm en það sem er svoldið skerí við þetta er að mér fannst þetta rosalega skemmtilegt!!! Er farin að hafa smá áhyggjur af skemmtanagildinu / skemmtanastuðlinum mínum !!!!! Verður hægt að bjarga mér?

jæja ég er bara svona sniðug

2.01.2005

Slagsmál og knús

Þarf að finna það nákvæmlega út hvað það er við köben og stemningunna þar sem eg sakna svo mikið.. og yfirfæra hana hingað... Held nefnilega að þetta sé ákveðið viðhorf sem vel sé ´hægt að temja sér hér!! smá vinna.. og ef til vill eilítil slagsmál við normið í samfélaginnu... en svo þess virði!!! Það er svo mikil tilgangslaus hraði og meðvitaður metingur um veraldlega hluti hérna... Auðvita er kona sjálf á kafi í þessu líka og er meðvituð um það... þarf bara að brjórast út úr þessu!! Íbúðin er rosaleg!!! Það er allt í múr-slettum/ryki og spasl-sóti.... pufff!!! Samkvæmt ultimate plani þá eru málningardagar um helginna.. þannig kona verður að vera dugleg alla vikunna til að gera allt klárt. Ef þú finnur hjá þér málningarstuð þá ertu hjartanlega velkomin í stemningunna!!! :) Afi átti afmæli á sunnudaginn sl. Það var keypt kaka og brunað vestur til að halda almennilega veislu :) ótrúlega gott að hitta þau og knúsa svolítið. Og ú ú ú myndir fra koben og úr afmælisferðinni!

Skátar

Verð að setja þetta hérna inn... þetta er á baggalúti frá þvi í gær.... er búin að vera í kasti hérna fyrir framan skjáinn... þetta er svo mikil snilld!! :)

Skátar
Hvaða rugl er þetta með þessa skáta? Að gefa börnum hnífa, kenna þeim að hnýta hengingarhnúta og kveikja bál. Klæða þau upp í litla einkennisbúninga í felulitunum og sæma þau litlum "heiðursmerkjum" - búa til litla "foringja".
Og hvað með þessar fáránlegu upphrópanir? PALAVÚ! - hvurn fjandann á það að þýða? INGIPINGIPALA! - hver skilur svona dellu?
Svo er til fullorðið fólk sem hættir ekkert þessu bölvaða rugli. Fullorðnir karlmenn sem hittast á fundum og grenja hver framan í annan: "GING GANG GÚLLÍ - HEILASEILA - ÚMBA ÚMBA! Með klúta um hálsinn eins og sjötugar kellingar á kvenfélagsfundi. Gera síðan dulítið leyniskáta­merki með hendinni rétt á meðan þeir eru ekki að tálga eitthvert spýtnarusl.
Er þetta bara allt í lagi? Er þetta bara normal? Auðvitað ekki! Þetta gæti meiraðsegja verið þjónustufulltrúinn þinn í bankanum.
-- -- --
Þjónustufulltrúi: "Góðan dag - get ég aðstoðað þig?"
Þú: "Já, ég vildi fá að hækka yfirdráttinn minn..."
Þjónustufulltrúi: "Já - látum okkur sjá... ég get hækkað hann upp í 300.000.- ÚMBA ÚMBA!"
Þú: "Eeh... já - takk fyrir."
Þjónustufulltrúi: "PALAVÚ!"
Þú: "Djíseskræst."
Þjónustufulltrúi: "INGIPINGIPALA!"


Svo auðvita bar-mynd fra köben :) Posted by Hello


Með Marie Posted by Hello


bíður vors eins og við hin Posted by Hello


Þau eru mest ljómandi Posted by Hello

Literally

Svo kætandi svona í morgunsárið

“This is the accounts department, the number bods. Do not be fooled by their job descriptions, they are absolutely mad, all of ‘em. Especially that one, he’s mental. Not literally of course, that wouldn’t work.”
David Brent (Series 1 Episode 1)